Fotbolti.net
02.09.26 - 20:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Breki Baxter til Noregs (Staðfest)

Breki Baxter til Noregs (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Norska félagið Egersund er búið að kaupa Þorlák Breka Baxter af Keflavík en hann gekk í raðir Keflavíkur fyrir tímabilið í ár. Hann skrifar undir tveggja ára samning með möguleika á árs framlengingu.

Í tilkynningu Egersund segir að einungis eigi eftir að klára síðustu pappírana.

Breki er fæddur árið 2005 og er uppalinn hjá Hetti á Egilsstöðum. Hann fór þaðan á Selfoss og í kjölfarið í Stjörnuna eftir stutt stopp hjá Lecce á Ítalíu. Keflavík keypti hann af Stjörnunni í fyrra eftir að Breki hafði leikið vel með ÍBV þar sem hann fann sig í nýju hlutverki sem miðjumaður eftir að hafa spilað framar á vellinum fram að því.
Tíu sem hafa komið á óvart í Bestu deildinni í sumar
TENGT EFNI

Tíu sem hafa komið á óvart í Bestu deildinni í sumar

Breki hefur spilað virkilega vel með nýliðum Keflavíkur í Bestu deildinni og vakið athygli fyrir sína frammistöðu. Hann hefur skorað tvö mörk og lagt upp þrjú sem varnarsinnaður miðjumaður. Hann á að baki fimm leiki fyrir yngri landslið Íslands og er gjaldgengur í U21 landsliðið.

Egersund er í norsku B-deildinni og eru tveir Íslendingar hjá félaginu. Haraldur Árni Hróðmarsson er aðstoðarþjálfari liðsins og Hinrik Harðarson er leikmaður liðsins. Þá er Marcel Zapytowski, sem var aðalmarkvörður ÍBV á síðasta tímabili, markvörður liðsins. Egersund situr sem stendur í 8. sæti OBOS-deildarinnar, fimm stigum frá umspilssæti þegar tíu umferðir eru eftir.

Félagaskiptaglugginn í Noregi lokar í kvöld.


Breki Baxter til Noregs (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Breki Baxter til Noregs (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.