02.10.16 - 07:30
Jóhann Ingi Hafþórsson
Prandelli tekinn við Valencia (Staðfest)

Cesare Prandelli þjálfari ítalska landsliðið á árum áður.

Mynd: Getty Images

Cesare Prandelli þjálfari ítalska landsliðið á árum áður.

Mynd: Getty Images
Valencia hefur ráðið fyrrum landsliðsþjálfara Ítalíu, Cesare Prandelli sem nýjan þjálfara sinn en hann skrifar undir tveggja ára samning við félagið.
Prandelli er 59 ára en hann tekur við af Pako Ayestarán sem var rekinn eftir hálft ár í starfi en Gary Neville var með liðið þar á undan.
Ítalinn verður áttundi þjálfari liðsins á síðustu fjórum árum en þetta stóra félag hefur munað fífil sinn fegri.
Ayestaran var rekinn eftir tap í fyrstu fjórum leikjum tímabilsins.
Ítalinn verður áttundi þjálfari liðsins á síðustu fjórum árum en þetta stóra félag hefur munað fífil sinn fegri.
Ayestaran var rekinn eftir tap í fyrstu fjórum leikjum tímabilsins.
