Fotbolti.net
02.10.19 - 19:36
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Andri Ólafs nýr þjálfari kvennaliðs ÍBV (Staðfest)

Andri Ólafsson.

Andri Ólafsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Andri Ólafsson er nýr þjálfari kvennaliðs ÍBV. Sigþóra Guðmundsdóttir, formaður meistaraflokksráðs kvenna hjá ÍBV, staðfestir þessi tíðindi.

Samningurinn við Andra er til þriggja ára.
Það koma fram á vef Eyjafrétta um miðjan síðasta mánuð að Andri myndi taka við kvennaliði ÍBV. Hann tekur við liðinu af Jóni Óla Daníelssyni.

ÍBV hafnaði í áttunda sæti Pepsi Max-deildarinnar í sumar, fimm stigum frá fallsæti.

Andri Ólafsson er 34 ára gamall og lék hann með ÍBV langstærstan hluta leikmannaferils síns. Hann á einnig leiki fyrir Grindavík, KR og KFS.

Frá því í júlí var Andri aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla hjá ÍBV. Andri stýrði ÍBV í leik gegn Val þar sem Ian Jeffs þurfti að sinna starfi sínu sem aðstoðarþjálfari kvennalandsliðsins. Þann leik vann ÍBV 2-1, annar af tveimur deildarsigrum liðsins í sumar.

Karlalið ÍBV féll úr Pepsi Max-deildinni. Helgi Sigurðsson var í gær ráðinn þjálfari karlaliðsins.

Skrifuðu undir samninga
Að því tilefni að Andri var ráðinn skrifuðu nokkrir leikmenn ÍBV undir nýja samninga. Þær Guðný Geirsdóttir, Júlíana Sveinsdóttir, Sirrý Sæland, Ragna Sara Magnúsdóttir, Selma Björt Sigursveinsdóttir skrifuðu allar undir tveggja ára samninga.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.