Fotbolti.net
02.10.19 - 14:13
Elvar Geir Magnússon

Garðar Gunnlaugs leggur skóna á hilluna (Staðfest)

Garðar Gunnlaugsson.

Garðar Gunnlaugsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sóknarmaðurinn Garðar Gunnlaugsson hefur staðfest á Instagram að skórnir séu komnir á hilluna.

<i>„Takk fyrir allt elsku fótbolti og allt og allir sem honum tengjast!"</i> skrifaði Garðar á Instagram.

Garðar er fæddur 1983 en hann gekk í raðir Vals fyrir nýliðið tímabil en brjósklos í neðra baki gerði það að verkum að hann gat lítið spilað.

Garðar er kominn með starf á Ítalíu sem tengist ekki knattspyrnu heldur hjá stóru innréttingafyrirtæki, Gili Creations.

Garðar hóf ferilinn með ÍA og skipti svo yfir til Vals áður en hann hélt út í atvinnumennsku. Hann var lykilmaður í liði Norrköping og spilaði einnig fyrir CSKA Sofia, LASK Linz og SpVgg Unterhaching áður en hann hélt aftur á Skagann.

Hann var lykilmaður hjá ÍA í sex ár áður en hann skipti yfir til Vals fyrir sumarið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.