02.10.19 - 16:02
Elvar Geir Magnússon
Heimir tekur við Val (Staðfest) - Fjögurra ára samningur

Heimir Guðjónsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Heimir Guðjónsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Valur hefur staðfest að Heimir Guðjónsson hafi verið ráðinn nýr þjálfari liðsins. Hann gerir fjögurra ára samning við Hlíðarendafélagið.
Hann tekur við stjórnartaumunum af sínum gamla læriföður, Ólafi Jóhannessyni, en Valur ákvað að endurnýja ekki samninginn við hann.
Heimir hefur síðustu tvö ár þjálfað HB í Færeyjum og gert liðið að Færeyjameisturum og bikarmeisturum.

Áður var Heimir hjá FH þar sem hann vann ófáa titlana sem leikmaður, aðstoðarþjálfari og svo sem aðalþjálfari.
Ekki hefur verið gefið út hverjir verða Heimi til aðstoðar hjá Val.
Ólafur Jóhannesson stýrði Val í fjögur ár, vann tvo bikarmeistaratitila og tvo Íslandsmeistaratitla. Á liðnu tímabili olli liðið gríðarlegum vonbrigðum og endaði í sjötta sæti Pepsi Max-deildarinnar.
Tilkynning Vals:
Heimir Guðjónsson tekur að sér þjálfun meistaraflokks Vals í knattspyrnu karla
Stjórn knattspyrnudeildar Vals og Heimir Guðjónsson hafa komist að samkomulagi um að Heimir taki að sér þjálfun meistaraflokks Vals í knattpyrnu karla til næstu 4 ára. Heimir er einn sigursælasti þjálfari landsins en hann leiddi FH til Íslandsmeistaratitils fimm sinnum á tíu ára ferli sem þjálfari liðsins. Heimir var kosinn þjálfari ársins í Færeyjum á síðasta ári en hann gerði Havnar Bóltfelag af meisturum það sama ár og bikarmeisturum í ár.
Heimir lék 251 leik í efstu deild með KR, ÍA og FH og ríflega 300 meistaraflokksleiki alls á löngum ferli. Hann varð Íslandsmeistari með FH í tvígang sem leikmaður og einu sinni sem aðstoðarþjálfari, einnig lék hann sex A-landsliðsleiki.
„Það er mjög spennandi að koma til Vals á þessum tímapunkti, Valur hefur mikla sigurhefð, hefð sem ég ætla mér að viðhalda og styrkja. Valur er þannig félag að það vill alltaf leika til sigurs í öllum mótum. Það er mjög sterkur kjarni í liði Vals sem ætlar sér að keppa um alla titla á næsta ári.“ segir Heimir Guðjónsson nýráðinn þjálfari meistaraflokks Vals í knattspyrnu karla.
Stjórn knattspyrnudeildar Vals býður Heimi velkominn til starfa og væntir mikils af starfi hans fyrir félagið.