02.11.16 - 15:00
Magnús Már Einarsson
Heiðdís í Breiðablik (Staðfest)

Þorsteinn Halldórsson, þjálfari Breiðabliks, og Heiðdís við undirskrift.

Mynd: Breiðablik

Breiðablik hefur fengið varnarmanninn Heiðdísi Sigurjónsdóttur í sínar raðir frá Selfossi.
Heiðdís hefur skrifað undir þriggja ára samning við bikarmeistarana.

Heiðdís, sem er 20 ára gömul, hefur undanfarin tvö ár spilað með Selfossi í Pepsi-deildinni en hún er alin upp hjá Hetti á Egilsstöðum.
Heiðdís á að baki 19 landsleiki með yngri landsliðum Íslands en með Selfossi spilaði hún samtals 37 leiki í deild og bikar.
„Heiðdís er mjög fljót og spilaði sem framherji í yngri flokkunum. En undanfarin ár hefur hún oftast spilað sem miðvörður. Blikar bjóða Heiðdísi velkomna í Breiðablik og vonast til að hún nái að blómstra með okkur,\" segir í tilkynningu frá Breiðabliki.

Heiðdís í leik með Selfossi.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð