02.11.17 - 20:06
Elvar Geir Magnússon
Atli Guðna áfram hjá FH (Staðfest)

Atli áfram í Krikanum.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Atli áfram í Krikanum.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Atli Guðnason hefur endurnýjað samning sinn við FH um eitt ár og verður því með liðinu á næsta ári.
Frá þessu er greint á <a href=\"http://www.visir.is/g/2017171109671/atli-afram-hja-fh\" target=\"_blank\">Vísi</a>.

Atli, sem er 33 ára, er vafalítið einn allra besti leikmaður í sögu FH og efstu deildar á Íslandi.
Hann hefur verið í herbúðum FH frá 2004.
Atli var markahæsti leikmaður Pepsi-deildarinnar 2012 en alls hefur hann leikið 237 leiki í efstu deild og skorað 63 mörk.
Hann hefur haft hægt um sig í markaskorun síðustu tvö ár. Hann skoraði aðeins eitt mark í 20 leikjum á liðnu tímabili og í fyrra skoraði hann eitt mark í 18 leikjum.
FH hafnaði í þriðja sæti í sumar en eftir tímabilið ákvað stjórn félagsins að segja upp samningi Heimis Guðjónssonar þjálfara. Ólafur Kristjánsson tók við.
Einn leikmaður hefur gengið í raðir FH eftir að Ólafur tók við, það er miðjumaðurinn Guðmundur Kristjánsson.