02.11.17 - 12:10
Magnús Már Einarsson
Gary Martin til York (Staðfest)

Gary Martin.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gary Martin.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Enski framherjinn Gary Martin hefur skrifað undir stuttan samning við York í ensku utandeildinni.
Gary samdi í síðustu viku við Lilleström í Noregi eftir að hafa yfirgefið Lokeren í Belgíu.

Þar sem félagaskiptaglugginn í Noregi er lokaður þá verður Gary ekki leikmaður Lilleström fyrr en eftir áramót.
Hinn 27 ára gamli Gary hefur því ákveðið að spila með York næstu vikurnar en félagaskiptareglur eru öðruvísi í ensku utandeildinni.
Gary gæti leikið sinn fyrsta leik með York gegn Curzon Ashton á laugardaginn.
Gary varð markakóngur í Pepsi-deildinni árið 2014 en hann lék á Íslandi með ÍA, KR og Víkingi R. frá 2010 til 2016.