02.11.17 - 21:02
Magnús Már Einarsson
Viktor Bjarki til HK (Staðfest)

Viktor Bjarki er reynslubolti.

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

HK hefur fengið miðjumanninn reynda Viktor Bjarka Arnarsson í sínar raðir frá Víkingi R.
Samhliða því að spila með HK mun hann koma inn í þjálfarateymi meistaraflokks með Brynjari Birni Gunnarssyni. Brynjar Björn tók við HK á dögunum eftir að Jóhannes Karl Guðjónsson hætti til að taka við ÍA.

Hinn 34 ára gamli Viktor Bjarki er uppalinn í Víkingi R. og hefur spilað samtals 250 leiki í efstu deild og bikar hérlendis og skorað í þeim 33 mörk.
Einnig hefur hann spilað með FC Utrect og Topp Oss í Hollandi, Lilleström og Nybergsund í Noregi, ásamt Fylki, Fram, KR og Víkingi R. á Íslandi.
„HK býður Viktor Bjarka velkominn í lið fólksins og HK fjölskylduna,\" segir á heimasíðu HK.