02.11.18 - 15:27
Elvar Geir Magnússon
Andy Pew í Þrótt Vogum (Staðfest)

Andy Pew og Úlfur Blandon, þjálfari Þróttar.

Mynd: Þróttur Vogum

Andy Pew og Úlfur Blandon, þjálfari Þróttar.

Mynd: Þróttur Vogum
Varnarmaðurinn Andy Pew er genginn í raðir Þróttar Vogum. Pew er 37 ára og kemur frá Vestra en hann var valinn í lið ársins í 2. deild í sumar.
„Fyrir tíma sinn hjá Vestra spilaði Andrew á Selfossi þar sem hann hefur spilað síðastliðin ár við góðan orðstír í Inkasso deildinni. Andrew kom fyrst til landsins árið 2006 og á að baki 200 leiki á Íslandi og í þeim náð að skora 10 mörk," segir í yfirlýsingu Þróttar.
„Andrew er hávaxinn hafsent og mun koma til með að styrkja varnarleikinn vel, enda gríðarlega reynslumikill leikmaður. Stjórn knattspyrnudeildar lýsir yfir mikilli ánægju með komu Andrew Pew til félagsins og væntir mikils af samstarfinu."
Pew sagði frá því í síðasta mánuði að hann þyrfti að yfirgefa Vestra af fjölskylduástæðum.
Þróttur Vogum endaði í sjötta sæti 2. deildar í sumar.

Pew í leik með Vestra.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð