02.11.18 - 20:00
Arnar Helgi Magnússon
Milos Ivankovic til Vestra (Staðfest)

Milos í leik með Huginn.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Milos í leik með Huginn.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Serbneski leikmaðurinn Milos Ivankovic skrifaði í dag undir tveggja ára samning hjá Vestra. Hann kemur frá Huginn.
Milos lék fyrstu meistaraflokksleiki sína hér á landi árið 2014 þegar hann lék einmitt með Huginn. Þar var hann í tvö tímabil áður en hann tók eitt tímabil með Fjarðabyggð.
„Milos, sem er þrítugur Serbi, er stór og öflugur miðvörður sem mun klárlega styrkja liðið okkar."
„Við bjóðum Milos velkominn til Vestra og vonum að hérna eigi hann eftir að eiga margar frábærar stundir með okkur," segir á heimasíðu Vestra.
Vestri endaði í 3. sæti í 2. deildinni í sumar, stigi á eftir Aftureldingu og Gróttu sem fóru upp um deild.

Milos skrifar undir.

Mynd: Vestri