Fotbolti.net
02.11.18 - 14:06
Elvar Geir Magnússon

Viktor Jónsson kominn í ÍA (Staðfest)

Viktor mættur í treyju ÍA.

Viktor mættur í treyju ÍA.

Canon

Mynd: ÍA

Skagamenn halda áfram að styrkja hóp sinn fyrir komandi tímabil í Pepsi-deild karla.

Sóknarmaðurinn Viktor Jónsson, sem var markahæsti leikmaður Inkasso-deildarinnar í sumar og valinn bestur í deildinni af þjálfurum og fyrirliðum, hefur skrifað undir.

Viktor kemur frá Þrótti. KA vildi einnig fá Viktor í sínar raðir og hafði Þróttur tekið tilboði frá Akureyri. En það var ÍA sem hafði betur í baráttunni.
Af heimasíðu ÍA:
Rétt í þessu var Knattspyrnudeild ÍA að ganga frá samningi við Viktor Jónsson, samningurinn er til tveggja ára. Viktor gengur til liðs við ÍA frá Þrótti Reykjavík þar sem hann hefur verið undanfarin tvö tímabil og skorað 35 mörk í 39 leikjum. Því er ljóst að Viktor verður gífurlega góð viðbót í hópinn fyrir komandi átök í Pepsi deildinni 2019.

Viktor sem er fæddur árið 1994 hóf sinn meistaraflokks feril með Víking Reykjavík, en hann á að baki 140 meistaraflokks leiki þar sem hann hefur í heildina skorað 68 mörk.

Jóhannes Karl segist himinlifandi með að samkomulag sé í höfn, en Viktor tekur í sama streng. Þessi viðbót í leikmannahópinn sýni metnað fyrir komandi verkefnum.

Við bjóðum Viktor velkomin til liðs við ÍA og hlökkum til að sjá hann á vellinum næsta sumar!

Sjá einnig:
Óttar Bjarni gengur í raðir ÍA (Staðfest)
Viktor Jónsson kominn í ÍA (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.