Fotbolti.net
02.12.12 - 07:00
Ívan Guðjón Baldursson

Pellegrino rekinn frá Valencia (Staðfest)

Pellegrino rekinn frá Valencia (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Valencia er búið að reka Mauricio Pellegrino sem þjálfara eftir 5-2 tap gegn Real Sociedad á heimavelli í spænsku efstu deildinni á laugardaginn.

Valencia var búið að vera ósigrað í sex heimaleikjum í röð fyrir tapið en hafði þó ekki unnið einn af síðustu sjö útileikjum sínum í deildinni og tapaði liðið 4-0 fyrir Malaga í síðustu umferð og er nú í 12. sæti deildarinnar.
,,Við höfum verið að ræða málin og höfum ákveðið að reka Mauricio Pellegrino,\" sagði Manuel Llorente, forseti félagsins.

Llorente segir þjálfarann vera rekinn vegna lélegs árangurs á útivelli en markmið félagsins fyrir tímabilið var að berjast um sæti í Meistaradeild Evrópu.

Pellegrino er annar þjálfarinn í La Liga til að vera rekinn á tímabilinu en Mauricio Pochettino var rekinn frá Espanyol í síðustu viku.

Heimild: Sports Illustrated

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.