Fotbolti.net
02.12.18 - 15:30
Arnar Helgi Magnússon

Fram fær þrjá leikmenn - Ólafur Íshólm þar á meðal (Staðfest)

Ólafur Íshólm ver mark Fram næsta sumar.

Ólafur Íshólm ver mark Fram næsta sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fram hefur samið við þrjá nýja leikmenn en liðið kynnir leikmennina með skemmtilegu myndbandi sem má sjá hér að neðan.

Þetta eru þeir Ólafur Íshólm, Hilmar Freyr Bjartþórsson og Matthías Króknes Jóhannsson.

Einnig hefur félagið framlengt við fjöldan allan af leikmönnum sem og þeir kynna Daða Lárusson sem nýjan markmannsþjálfara.
Ólafur Íshólm gekk til liðs við Breiðablik fyrir sumarið en hann lék einungis einn leik með félaginu í sumar. Áður hafði hann leikið með Fylki. Hann á að baki 35 meistaraflokksleiki og tvo fyrir u-17 ára lið Íslands.

Hilmar Freyr kemur frá Leikni F. þar sem hann hefur spilað stærstan hluta síns meistaraflokksferils. Hann hefur leikið 188 leiki í meistaraflokk og skorað í þeim 42 mörk en hann er miðjumaður.

Matthías Króknes kemur frá Vestra en hann getur leyst stöðu varnar og miðjumanns. Hann hefur leikið allan sinn feril með Vestra eða BÍ/Bolungarvík eins og það hét áður fyrr.

Stefán Ragnar Guðlaugsson lék með liðinu í æfingaleik í gær en Stefán spilaði með Selfossi í sumar.

Jökull Steinn Ólafsson, Hlynur Atli Magnússon, Orri Gunnarsson og Arnór Siggeirsson hafa allir framlengt samning sinn við Fram.

Hilmar Freyr Bjartþórsson í leik með Leikni F.

Hilmar Freyr Bjartþórsson í leik með Leikni F.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Matthías Króknes

Matthías Króknes

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.