02.12.18 - 20:28
Ívan Guðjón Baldursson
Þriðja Evrópukeppnin hefst 2021 (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Evrópska knattspyrnusambandið, UEFA, hefur staðfest nýja Evrópukeppni sem mun hefjast tímabilið 2021-22.
Nýju keppninni hefur ekki enn verið gefið nafn en hún er kölluð UEL2 (Uefa Europa League 2) sem stendur.
Leikir verða spilaðir á fimmtudagskvöldum og eru leikdagarnir nákvæmlega þeir sömu og í Evrópudeildinni.
Það verða 8 riðlar með 4 liðum í hverjum riðli og útsláttarkeppni. Lið sem enda í þriðja sæti í riðlakeppni Evrópudeildarinnar munu detta niður í útsláttarkeppni UEL2.
Þessi keppni eykur líkurnar talsvert á að íslenskt félagslið komist í riðlakeppni.