Vafaatriðin féllu í tvígang gegn Manchester United á tveggja mínútna kafa um miðbik seinni hálfleiksins gegn PSG í Meistaradeildinni.
Staðan er 1-2 fyrir PSG þegar þetta er skrifað og þrjár mínútur eftir af venjulegum leiktíma.
Fyrst kom Marquinhos PSG yfir á 69. mínútu þegar hann kom boltanum í netið. Marquinhos var mögulega rangstæður en í útsendingunni var ekki teiknuð lína eins og í úrvalsdeildinni.
Mínútu síðar fékk Fred að líta sitt annað gula spjald fyrir meint brot á Ander Herrera. Fred fór í boltann og geta lesendur dæmt hver fyrir sig. Fred var líklega á síðasta séns eftir að hafa farið með höfuðið í Leandro Paredes í fyrri hálfleik. Þá fékk hann sitt fyrra gula spjald.
Mark Marquinhos má sjá hér og rauða spjaldið má sjá hér.

Neymar and Scott McTominay exchange views on footballing philosophies as the sides head in for half-time at Old Trafford 👀 pic.twitter.com/JHqtkQspmO
— Football on BT Sport (@btsportfootball) December 2, 2020
Dómarinn rekur Fred ekki útaf fyrir að skalla mann en rekur hann svo útaf fyrir að tækla boltann. Þetta er mögnuð ákvörðun.
— Daníel Smári Magnússon 🎡 (@danielmagg77) December 2, 2020
Þetta er ekki Fred að kenna. OGS þarf að taka ábyrgð á þessu að hafa ekki verið búinn að kippa honum af velli. Takk.
— Rikki G (@RikkiGje) December 2, 2020
Athugasemdir