Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 02. desember 2021 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Myndband: Annað aukaspyrnumark Zlatans á tímabilinu
Zlatan er engum líkur
Zlatan er engum líkur
Mynd: EPA
Sænski framherjinn Zlatan Ibrahimovic skoraði annað aukaspyrnumark sitt á tímabilinu í 3-0 sigri Milan á Genoa í Seríu A í gær.

Markið kom á 10. mínútu leiksins. Milan fékk aukaspyrnu af 25 metra færi og var það ekkert vandamál fyrir Zlatan sem setti boltann hægra megin við vegginn og í hornið.

Salvatore Sirigu, markvörður Genoa og fyrrum samherji Zlatans hjá Paris Saint-Germain, stóð hreyfingarlaus á línunni.

Þetta var annað aukaspyrnumark Zlatans á leiktíðinni og er hann nú með sex deildarmörk í aðeins níu leikjum.

Smelltu hér til að sjá aukaspyrnumark Zlatans
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner