Fotbolti.net
03.01.13 - 21:32
Sebastían Sævarsson Meyer
Ítalska deildin

Alexandre Pato til Corinthians (Staðfest)

Alexandre Pato til Corinthians (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Brasilíska knattspyrnufélagið Corinhians hefur staðfest félagaskipti Alexandre Pato til félagsins frá AC Milan fyrir 15 milljónir evra.

Pato mun því snúa aftur til heimalands síns en hann skrifaði undir fjögurra ára samning við Corinthians.
Pato hefur verið hjá AC Milan síðan 2007 þegar hann kom frá Internacional í Brasilíu. Hann þótti þá gríðarlegt efni en fyrir AC Milan skoraði hann 63 mörk í 150 leikjum.

Undanfarið hefur hann verið býsna óheppinn með meiðsli og því lítið spilað en hann kom aðeins við sögu í fjórum deildarleikjum AC Milan á núverandi tímabili.

Þessi 23 ára sóknarmaður stefnir nú á að koma ferli sínum aftur á skrið hjá Corinthians.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.