Fotbolti.net
03.01.13 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Foued Kadir til Marseille (Staðfest)

Foued Kadir til Marseille (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Franska stórliðið Olympique de Marseille hefur fest kaup á Faed Koudir frá Valenciennes fyrir 500 þúsund evrur.
Koudir, sem er 29 ára sóknarmaður, hefur að undanförnu leikið með Valenciennes við góðan orðstír, en hann hefur skorað sex mörk og átt sjö stoðsendingar á þessari leiktíð með franska liðinu.

Hann er þessa stundina með landsliði Alsír að undirbúa sig fyrir Afríkumótið, sem hefst á allra næstunni, en hann gerði þriggja og halfs árs samning við Marseille.

Hann mun því auka samkeppnina hjá sóknarmönnunum, en fyrir eru þeir Andre Ayew og Mathieu Valbuena, Loic Remy og Andre-PIerre Gignac, svo einhverjir séu nefndir.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.