03.01.13 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Guðmundur Garðar ráðinn þjálfari KFR (Staðfest)

Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl

Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl
Guðmundur Garðar Sigfússon hefur verið ráðinn spilandi þjálfari hjá Knattspyrnufélagi Rangæinga en þetta kemur fram á vef Sunnlenska.
KFR féll úr annarri deildinni í sumar og mun því vera eitt af tíu liðum sem leika í nýju þriðju deildinni næsta sumar.

Guðmundur hefur leikið með Knattspyrnufélagi Árborgar undanfarin tólf ár, samtals 206 leiki og skorað í þeim 58 mörk.
Hann þjálfaði Árborg á síðasta keppnistímabili í gömlu 3. deildinni og var það í fyrsta skipti sem hann þjálfaði meistaraflokk. Að auki hefur hann þjálfað yngri flokka hjá Selfyssingum undanfarin ár.
Ómar Valdimarsson þjálfaði KFR fram í ágúst á síðasta ári þegar hann sagði upp og Lárus Viðar Stefánsson tók við liðinu út tímabilið.

Heimild: Sunnlenska.is