Fotbolti.net
03.01.17 - 21:43
Magnús Már Einarsson

Mike Phelan rekinn frá Hull (Staðfest)

Mike Phelan rekinn frá Hull (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Hull City hefur rekið knattspyrnustjórann Mike Phelan en þetta var staðfest nú rétt í þessu.
Phelan tók við Hull í sumar eftir að Steve Bruce hætti með liðið. Phelan hafði áður verið aðstoðarmaður Bruce.

Nýliðarnir unnu fyrstu tvo leiki sína á tímabilinu en síðan þá hefur heldur betur hallað undan fæti.

Hull tapaði í gær 3-1 gegn WBA en liðið er núna í neðsta sæti í ensku úrvalsdeildinni með 13 stig.

Hinn 54 ára gamli Phelan var á sínum tíma aðstoðarmaður Sir Alex Ferguson hjá Manchester United.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.