Fotbolti.net
03.01.17 - 17:23
Magnús Már Einarsson

Ndidi til Leicester (Staðfest)

Ndidi til Leicester (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Leicester hefur keypt miðjumanninn Wilfred Ndidi frá belgíska félaginu Genk.

Ndidi skrifaði undir samning við Leicester sem gildir til ársins 2022 en hann verður í treyju númer 25 hjá félaginu.
Fleiri félög höfðu sýnt Ndidi áhuga en þessi efnilegi leikmaður leikur aftarlega á miðjunni.

Hinn tvítugi Ndidi er frá Nígeríu en hann hefur leikið í Belgíu undanfarin tvö ár.

Leicester bíður nú eftir að pappírar varðandi atvinnuleyfi gangi í gegn og í kjölfarið getur Ndidi byrjað að spila með liðinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.