03.01.17 - 16:21
Magnús Már Einarsson
Paul Clement tekinn við Swansea (Staðfest)

Paul Clement.

Mynd: Getty Images

Paul Clement.

Mynd: Getty Images
Gylfi Þór Sigurðsson hefur fengið nýjan stjóra hjá Swansea en félagið hefur ráðið Paul Clement til starfa.
Clement skrifaði undir tveggja og hálfs árs samning í dag en hann tekur við botnliði Swansea af Bob Bradley sem var rekinn í síðustu viku.
Hinn 44 ára gamli Clement var síðast aðstoðarþjálfari FC Bayern en hann hefur einnig verið aðstoðarþjálfari hjá Real Madrid, Chelsea og PSG. Clement var einnig um tíma stjóri Derby í Championship deildinni en hann var ekki lengi í starfi þar.
Swansea mætir Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Clement verður í stúkunni þar en Alan Curtis mun stýra Swansea í leiknum.
Nigel Gibbs verður aðstoðarmaður Clement en hann kemur frá Tottenham þar sem hann var þjálfari í unglingaliðunum.