03.01.19 - 12:00
Magnús Már Einarsson
Álitsgjafar spá í leik Manchester City og Liverpool

Hvernig fer í kvöld?

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images

Hvernig fer í kvöld?

Mynd: Getty Images
Manchester City og Liverpool mætast í stórleik í ensku úrvalsdeildinni klukkan 20:00 í kvöld. Liverpool er með sjö stiga forskot á Manchester City fyrir leikinn en úrslit kvöldsins gætu haft mikið að segja í titilbaráttunni sem er framundan.
Fótbolti.net fékk nokkra álitsgjafa til að spá í spilin fyrir leikinn í kvöld.

Böðvar Böðvarsson, Jagiellonia Białystok
Vona innilega að Man City vinni þennan leik og haldi almennilegu lífi í toppbarátunni. Það er nógu sjálfskaðandi að fara á twitter nú þegar, hvað þá ef Liverpool taka titilinn. City tekur þetta 3-2 í uppbótartíma.
Sigurður Helgason, þjálfari 2. flokks KR
3-2 fyrir City ef Kevin De Bruyne er með. Ef hann spilar ekki þá gæti þetta orðið erfitt. Á von á stórskemmtilegum leik tveggja frábærra liða.
Aron Elís Þrándarson, Álasund
1-1. City mun dominera leikinn en ná ekki að klára þetta. Liverpool sáttir við jafntefli og munu ekki taka neina sénsa. Salah skorar eftir skyndisókn og kæmi mer ekki á óvart ef að Aguero myndi svo skora úr víti eftir klaufalega tæklingu Lovren.
Kristinn Páll Teitsson, Fréttablaðið
2-2 jafntefli í bráðfjörugum leik. Það er ekkert grín að heimsækja Etihad, City er bara búið að tapa þremur leikjum þar í ensku úrvalsdeildinni undir stjórn Guardiola. City byrjar leikinn með látum og reynir að brjóta Liverpool niður á fyrstu mínútunum, Aguero skorar eins og alltaf gegn Liverpool á Etihad en Bítlaborgarmenn fara sáttir heim með stigið. Auka hvíldardagurinn sem Liverpool fær á milli leikja skilar því.
Einar Matthías Kristjánsson, kop.is
Ég held að Liverpool komi í betra standi inn í þennan leik og taki þetta 1-4. Guardiola getur varla lagt upp með það aftur að halda stiginu og því vona ég að City verði opnara en á Anfield. City hefur verið að leka mörkum undanfarið og ótrúlegustu lið hafa verið að fá óvenju mikið af dauðafærum gegn þeim. Liverpool á sama tíma er að finna fjölina aftur sóknarlega og hafa núna skorað meira en á sama tíma í fyrra. Þrátt fyrir þessa spá er ég anda í brúnan bréfpoka stressaður fyrir þessum leik!
Yngvi Eysteinsson, FM957
3-1 fyrir Liverpool. Þegar þú færð nánast ekki mark á þig þá er erfitt að tapa fótboltaleikjum. Ég fer með bænirnar þrisvar sinnum á dag þar sem ég bið um að Liverpool byrji að hiksta en það er ekki útlit fyrir að ég verði bænheyrður. Þeir eru ógnarsterkir og Klopp mun skóla Guardiola í kvöld. Því miður.
Jón Kaldal, sparkspekingur
3-1 Manchester City. Ég hef trú á að Manchester City vinni þennan leik nokkuð sannfærandi. Liverpoolmenn hafa vissulega verið frábærir allra síðustu vikur en framan af hausti var heppnin með þeim í ansi mörgum leikjum. Og við skulum ekki gleyma að það er bara mánuður síðan Jordan Pickfort færði þeim öll stigin að gjöf í blálokin í leiknum við Everton. Manchester City hafa hikstað á sama tíma en Pep mun verða með liðið í toppstandi í kvöld. Ég spái 3-1 sigri heimamanna. Þeir eru enn með besta lið Englands.

Premier league - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Arsenal | 10 | +10 | 27 |
| 2 | Brighton | 10 | +19 | 22 |
| 3 | Man City | 10 | +8 | 21 |
| 4 | Liverpool | 10 | +4 | 18 |
| 5 | Chelsea | 10 | +3 | 16 |
| 6 | Everton | 10 | +2 | 16 |
| 7 | Bournemouth | 10 | +2 | 15 |
| 8 | Brentford | 10 | +5 | 14 |
| 9 | Leeds | 10 | +2 | 14 |
| 10 | Aston Villa | 10 | -3 | 13 |
| 11 | Tottenham | 10 | -1 | 12 |
| 12 | Newcastle | 10 | -3 | 12 |
| 13 | Hull City | 10 | 0 | 11 |
| 14 | Ipswich Town | 10 | -5 | 11 |
| 15 | Fulham | 10 | -2 | 10 |
| 16 | Nott. Forest | 10 | -4 | 9 |
| 17 | Coventry | 10 | -9 | 9 |
| 18 | Man Utd | 10 | -5 | 8 |
| 19 | Sunderland | 10 | -9 | 8 |
| 20 | Crystal Palace | 10 | -14 | 7 |