Fotbolti.net
03.01.19 - 15:27
Magnús Már Einarsson

Hótar að flytja úr landi ef Liverpool verður meistari

Hótar að flytja úr landi ef Liverpool verður meistari
Canon

Mynd: Getty Images

Mikill rígur hefur verið á milli Liverpool og Manchester United í gegnum tíðina.

Eftir sigursæla áratugi hjá Manchester United þá gæti Liverpool landað enska meistaratitlinum í fyrsta skipti í 29 ár á þessu tímabili. Liverpool er með sjö stiga forskot á Manchester City fyrir lykilleik í toppbaráttunni í kvöld.
Stuðningsmenn Manchester United vilja flestir frekar að City vinni heldur en Liverpool og þar á meðal eru stuðningsmenn United sem hringdu inn á Talksport í dag.

„Ég mun springa ef Liverpool vinnur deildina," sagði einn stuðningsmaður.

„Ég mun flytja úr landi, það er eini möguleikinn. Ég er stuðningsmaður United en ég er á leið á Etihad núna til að kaupa City treyju," sagði annar stuðningsmaður.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Brighton10+1922
3Man City10+821
4Liverpool10+418
5Chelsea10+316
6Everton10+216
7Bournemouth10+215
8Brentford10+514
9Leeds10+214
10Aston Villa10-313
11Tottenham10-112
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town10-511
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd10-58
19Sunderland10-98
20Crystal Palace10-147
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.