Allegri orðaður við Man Utd - Modric að framlengja við Real Madrid
banner
   fim 03. janúar 2019 22:16
Magnús Már Einarsson
Kompany: Fannst þetta vera frábær tækling á Salah
Kompany tæklar Salah í kvöld.
Kompany tæklar Salah í kvöld.
Mynd: Getty Images
„Ég er ekki of mikið að hugsa um úrslitin heldur er ég í skýjunum með stórkostlega frammistöðu," sagði Vincent Kompany, varnarmaður Manchester City, eftir 2-1 sigur liðsins á Liverpool í kvöld. „Við mættum mjög grimmu liði og náðum að jafna þá í baráttunni."

Liverpool er eftir leikinn ennþá með fjögurra stiga forskot á City á toppi deildarinnar. „Þetta er ennþá í höndum Liverpool. Þetta kom úr maganum á okkur, vilji sem þú getur ekki lýst. Við erum betra lið þegar við spilum með tilfinningum."

Kompany fékk gula spjaldið i fyrri hálfleik fyrir hörkutæklingu á Mohamed Salah.

„Mér fannst þetta vera frábær tækling, var hún það ekki? Ég náði boltanum og fór smá í manninn en þetta var ekki ljótt. Ég reyndi ekki að meiða hann. Ég þurfti að gera þetta eða hleypa honum í gegn," sagði Kompany eftir leik.
Athugasemdir
banner
banner
banner