03.01.19 - 22:35
Magnús Már Einarsson
Mendy hljóp inn á - Öryggisverðir reyndu að stöðva hann

Mendy fagnar með liðsfélögum sínum eftir leik.

Mynd: Getty Images

Vinstri bakvörðurinn hressi Benjamin Mendy hljóp inn á völlinn eftir 2-1 sigur Manchester City á Liverpool í kvöld.
Mendy er á meiðslalistanum en hann hljóp borgaralega klæddur inn á völlinn eftir leik til að fagna með liðsfélögum sínum.
Öryggisverðir héldu fyrst að um stuðningsmann úr stúkunni væri að ræða og fóru hlaupandi á eftir Mendy.
Mendy var þó ekki rekinn út af þegar öryggisverðirnir áttuðu sig á því að um leikmann Manchester City væri að ræða.
Mendy gerði síðan sjálfur grín að atvikinu á Twitter en hann er mjög virkur á þeim samfélagsmiðli.