Fotbolti.net
03.02.17 - 10:12
Magnús Már Einarsson

Gunnlaugur Hlynur í Víking Ó. (Staðfest)

Gunnlaugur var í láni hjá Víkingi Ólafsvík árið 2015.

Gunnlaugur var í láni hjá Víkingi Ólafsvík árið 2015.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Víkingur Ólafsvík hefur náð samkomulagi við Breiðablik um að fá miðjumanninn Gunnlaug Hlyn Birgisson í sínar raðir.

Gunnlaugur hefur spilað með Ólafsvíkingum í Fótbolta.net mótinu að undanförnu og hann hefur nú gert tveggja ára samning við Víking.
Hinn 21 árs gamli Gunnlaugur Hlynur var í láni hjá Fram í Inkasso-deildinni síðastliðið sumar.

Hann þekkir til í Ólafsvík eftir að hafa verið á láni hjá Víkingi hluta tímabils 2015 þegar liðið fór upp í Pepsi-deildina.

Ólsarar mæta Keflavík í leik um 7. sætið á Fótbolta.net mótinu í Reykjaneshöllinni klukkan 11:15 á morgun.

Komnir:
Guðmundur Steinn Hafsteinsson frá ÍBV
Gunnlaugur Hlynur Birgisson frá Breiðabliki

Farnir:
Admir Kubat
Björn Pálsson
Hrvoje Tokic
Martin Svensson
Pontus Nordenberg til Nyköpings BIS

Samningslausir:
Aleix Egea
Cristian Martinez
Einar Hjörleifsson
Emir Dokara
Farid Zato
Kramar Denis
William Dominguez Da Silva
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.