03.03.19 - 12:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Kante mest sektaður hjá Chelsea
Alltaf seinn á æfingar

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Chelsea tvíeykið, Ruben Loftus-Cheek og Callum Hudson-Odoi, hafa gefið það uppi að N'Golo Kante, miðjumaður félagsins, sé óvænt sá sem sé oftast sektaður af félaginu. Kante á það víst til að vera reglulega seinn á æfingar hjá liðinu.
Kante sem er þekktur fyrir að vera auðmjúkur og iðjusamur jafnt á vellinum sem utan hans. Liðsfélagar hans sögðu frá þessu í viðtali við Soccer AM. Liðsfélagarnir hikuðu ekki við að segja frá þessu þegar þeir voru spurðir hver þurfi að borga mest í sektir.
„Það er alveg klárt að það er N'Golo, maður hefði ekki giskað á það en hann er alltaf seinn á æfingar," sögðu liðsfélagar Kante.
„Hann er ekkert mjög seinn, kemur kannski einni eða tveimur mínútum of seint. Hann kemur og brosir til allra sem gerir það að verkum að við fyrirgefum honum þetta."
Chelsea mætir Fulham klukkan 14:05 í dag.