03.03.19 - 07:00
Arnar Helgi Magnússon
Krista Björt í Aftureldingu (Staðfest)

Mynd frá vinstri: Krista Björt og Halla Þórdís

Mynd: Afturelding

Afturelding er að styrkja sig fyrir komandi átök í Inkasso-deildinni en liðið hefur fengið Kristu Björt Dagsdóttur frá Fjölni.
Þá skrifar Halla Þórdís Svansdóttir undir sinn fyrsta samning við Aftureldingu.

Krista Björt er fædd árið 2000 en hún lék með Gróttu í 2. deildinni á síðasta tímabili. Hún er uppalin hjá Fjölni og snéri aftur í uppeldisfélagið í haust.
„Undanfarnar vikur hefur Krista Björt æft og spilað með Aftureldingu og heillað forráðamenn félagsins sem telja hana unga og efnilega og hafa alla burði til þess að verða einn af lykilmönnum félagsins á komandi árum," segir í fréttatilkynningu Aftureldingar.
Halla Þórdís Svansdóttir hefur skrifað undir sinn fyrsta samning við Aftureldingu. Halla er fædd árið 2002 en hún hefur spilað fjóra leiki fyrir meistarflokk Selfoss.
„Um leið og við óskum þeim báðum til hamingju með samninga þá viljum við bjóða Kristu Björt hjartanlega velkomna til félagsins."