Fotbolti.net
03.03.19 - 14:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Mourinho um skotmark United: Rakitic einn vanmetnasti leikmaður heims

Mourinho um skotmark United: Rakitic einn vanmetnasti leikmaður heims
Canon

Mynd: Getty Images

Manchester United er sagt hafa áhuga á Ivan Rakitic, miðjumanni Barcelona. Rakitic skoraði eina mark El Clasico í gær þar sem Barcelona vann 0-1 útisigur á Real Madrid.

Jose Mourinho, sem var rekinn frá Manchester United í desember, tjáði sig um Rakitic á beIN SPORTS. Mourinho tjáði sig einnig um samfélagsmiðla en hann og Paul Pogba elduðu grátt silfur saman vegna þeirra þegar Mourinho var við stjórnvölinn hjá United.

„Áður en ég fer leyfið mér að segja svolítið," byrjaði Mourinho.

„Mig hefur langað til að segja þetta í langan tíma: Ivan Rakitic er einn af vanmetnustu leikmönnum heims."

„Ég vildi bara enda á þessu vegna þess að við tölum oftast um stærstu nöfnin."

„Fyrir mér þarf Rakitic að bæta samfélagsmiðlana hjá sér því á þessari stundu er það mjög mikilvægt og hann er ekki góður á því sviði, hann er góður á vellinum"

„Hann er frábær leikmaður og skilar sínu varnarlega til að Messi geti spilað sinn leik frammi. Með boltann er hann frábær."
Mourinho um skotmark United: Rakitic einn vanmetnasti leikmaður heims
Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.