Fotbolti.net
03.03.21 - 18:00
Elvar Geir Magnússon

Marca: Felix bekkjaður í Madrídarslagnum

Atletico Madrid - Real Madrid verður á sunnudaginn klukkan 15:15.

Atletico Madrid - Real Madrid verður á sunnudaginn klukkan 15:15.

Canon

Mynd: Getty Images

Um helgina verður stórleikur í La Liga þegar Atletico Madrid tekur á móti meisturunum í Real Madrid í borgarslag.

Spænska blaðið Marca segir að Diego Simeone ætli að byrja með Joao Felix á bekknum í þeim leik.
Sagt er að Luis Suarez verði í fremstu víglínu og þar fyrir aftan verði Marcos Llorente, fyrrum leikmaður Real Madrid. Llorente hefur spilað vel á tímabilinu í sóknarsinnaðra hlutverki.

Kieran Trippier og Yannick Carrasco verða væntanlega vængbakverðir og þá getur Llorente spilað framar.

Feliz skoraði í sigri gegn Villarreal í La Liga um síðustu helgi en þa ðvar aðeins annað mark hans í fimmtán leikjum. Hann hefur enn ekki náð að sýna sitt besta hjá félaginu.



Atletico Madrid er í góðum málum á toppi La Liga, liðið er með 58 stig og hefur leikið leik færra en Barcelona og Real Madrid sem koma í næstu sætum með 53 stig.

La Liga - karlar

#LiðLmunStig
1Barcelona11+3430
2Atletico Madrid11+1428
3Real Madrid11+1827
4Betis11+323
5Real Sociedad11+120
6Sevilla11-217
7Athletic10+313
8Villarreal11012
9Celta11012
10Alaves11-212
11Vallecano10-512
12Getafe11-812
13Deportivo10011
14Espanyol11-111
15Osasuna10-1011
16Racing Santander11-1411
17Elche11-410
18Levante11-510
19Valencia11-99
20Malaga11-135
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.