Fotbolti.net
03.03.22 - 15:22
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Alex Bergmann lánaður í ÍR (Staðfest)

Alex Bergmann lánaður í ÍR (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍR hefur fengið Alex Bergmann Arnarsson, leikmann Víkings, á láni. Alex þekkir ágætlega til hjá ÍR því hann var á láni hjá félaginu fyrri hluta tímabilsins í fyrra.

Hann er 22 ára gamall varnarmaður og hefur leyst stöðu miðvarðar hjá Víkingi á undirbúningstímabilinu.
Í fyrra lék hann ellefu leiki með ÍR í 2. deildinni og lék svo með Víkingi Ólafsvík seinni hluta tímabilsins í Lengjudeildinni.

Hann hefur einnig leikið með Fram, Úlfunum, Fjarðabyggð og Njarðvík á ferlinum.

Sjá einnig:
Alex Bergmann staðið sig vel í vetur - Verður lánaður
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.