03.04.19 - 09:20
Arnar Daði Arnarsson
Halla og Hlíf í KR (Staðfest)

Hlíf er gengin í raðir KR.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Halla er komin í KR.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Hlíf er gengin í raðir KR.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Miðjumennirnir, Hlíf Hauksdóttir og Halla Marinósdóttir hafa skrifað undir tveggja ára samning við Pepsi Max-deildarlið KR. Auk þessi tilkynnti KR að Laufey Björnsdóttir hafi skrifað undir tveggja ára samning en hún kemur frá HK/Víkingi.
Hlíf er 29 ára miðjumaður, uppalin hjá ÍBV og lék þar með meistaraflokk á árunum 2009 til 2013. Þá gekk hún til liðs við Val og hefur verið þar síðan með hléum síðan.
Á síðasta tímabili lék hún hluta af tímabilinu með ÍBV. Hlíf hefur leikið 127 leiki með meistaraflokki og skorað í þeim 30 mörk.
Halla kemur frá FH þar sem hún hefur spilað lengst af, fyrir utan árið 2016 þegar hún spilaði með ÍR. Halla á að baki 134 meistaraflokksleiki og hefur skorað í þeim 10 mörk.
Halla var fyrirliði FH-liðsins í fyrra er liðið féll úr Pepsi-deildinni.
Við höfðum áður tilkynnt frá því að Laufey Björnsdóttir væri gengin í raðir KR.
Komnar:
Sandra Dögg Bjarnadóttir frá ÍR
Guðmunda Brynja Óladóttir frá Stjörnunni
Laufey Björnsdóttir frá HK/Víkingi
Halla Marinósdóttir frá FH
Hlíf Hauksdóttir frá Val
Farnar:
Hrafnhildur Agnarsdóttir í námi í Danmörku
Mia Celestina Annete Gunter
Mónika Hlíf Sigurhjartardóttir til Varde ÍF
Shea Connors til Ástralíu