03.04.19 - 19:54
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Leiknir R. fær tvo KR-inga og Fylkismann (Staðfest)

Stefán Árni og Hjalti eru mættir í Leikni.

Mynd: Leiknir R.

Leiknir úr Breiðholti er að styrkja sig fyrir átökin sem framundan eru í Inkasso-deildinni.
Félagið var að fá tvo leikmenn frá KR á láni. Þá Hjalta Sigurðsson og Stefán Árna Geirsson. Báðir skrifuðu þeir undir lánssamning við Leikni út tímabilið.

Bæði Hjalti og Stefán eru fæddir árið 2000 og hafa leikið með KR í yngri flokkum. Báðir komu þeir við sögu í Pepsi-deildinni síðasta sumar. Stefán lék einn leik og Hjalti þrjá.
Stefán Árni er leikinn og fjölhæfur sóknarmaður sem getur leyst allar stöður framarlega á vellinum. Hann var í U19 ára landsliðshóp Íslands í sumar sem lék í undankeppni EM.
Hjalti er fjölhæfur og klókur miðjumaður sem getur bæði leyst flest allar stöður inn á miðsvæðinu sem og bakvarðarstöðurnar. Hann var einnig í U19 ára landsliðshóp Íslands í sumar og var valinn í síðasta U21 árs landsliðshóp Íslands.
„Við bjóðum þá Hjalta og Stefán innilega velkomna í Leikni og við hlökkum svo sannarlega til að sjá þá vaxa og dafna í Leiknisbúningnum í sumar," segir í tilkynningu Leiknis.
Leiknismenn fengu líka Natan Hjaltalín á láni frá Fylki í síðustu viku. Hann er framherji sem spilaði með Elliða í 4. deild síðsta sumar og skoraði sex mörk í 13 leikjum.
Leiknir hafnaði í sjöunda sæti Inkasso-deildarinnar síðasta sumar. Stefán Gíslason tók við liðinu í vetur.

Þá má flauta Inkasso á! #fotboltinet https://t.co/LnjPZbhAY9
— Elvar Geir Magnússon (@elvargeir) April 3, 2019

Natan Hjaltalín.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð