Fotbolti.net
03.04.19 - 16:30
Arnar Daði Arnarsson

Robert Blakala farinn frá Njarðvík (Staðfest)

Blakala verður ekki með Njarðvík í sumar.

Blakala verður ekki með Njarðvík í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Pólski markvörðurinn, Robert Blakala hefur yfirgefið Njarðvík og hefur fengið leikheimild með nýju liði í Póllandi.

Þetta er mikið áfall fyrir Njarðvíkinga en Robert Blakala var hvorki meira né minna en sex sinnum í úrvalsliði umferðarinnar í Inkasso-deildinni hér á Fótbolta.net í fyrra.
Njarðvík endaði í 6. sæti Inkasso-deildarinnar í fyrra sem nýliði.

Í vetur hefur hinn ungi og efnilegi Brynjar Atli Bragason staðið vaktina í marki Njarðvíkur en hann var lánaður í Víði Garði í 2. deildinni í fyrra og lék með þeim 22 leiki í deild og bikar í fyrrasumar.

Komnir:
Atli Geir Gunnarsson frá Keflavík
Alexander Helgason frá Haukum
Davíð Guðlaugsson frá Víði Garði
Denis Hoda frá KH
Andri Gíslason frá Víði G.
Guillermo González Lamarca frá Skallagrími

Farnir:
Luka Jagacic í Reyni S.
Magnús Þór Magnússon í Keflavík
Neil Slooves til Skotlands
Robert Blakala til Póllands
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.