Breiðablik 3 - 1 FH
1-0 Barbára Sól Gísladóttir ('5 )
2-0 Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir ('26 )
3-0 Agla María Albertsdóttir ('57 )
3-1 Nia Raisa Christopher ('79 )
Lestu um leikinn
1-0 Barbára Sól Gísladóttir ('5 )
2-0 Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir ('26 )
3-0 Agla María Albertsdóttir ('57 )
3-1 Nia Raisa Christopher ('79 )
Lestu um leikinn
Íslands- og bikarmeistarar Breiðabliks nældu í enn einn titilinn er liðið varð meistari meistaranna eftir 3-1 sigur á FH á Kópavogsvelli í dag.
Undir eðlilegustu kringumstæðum hefði átt að krýna sigurvegara í gær. Mikil snjókoma var á höfuðborgarsvæðinu og frestaðist leikurinn um fimmtán mínútur, en var síðan flautaður af á 8. mínútu vegna veðurs.
Ákveðið var að fresta honum um sólarhring og var hann því leikinn í dag á sama velli, en við töluvert betri aðstæður.
Blikar komust í tveggja marka forystu á fyrsta hálftímanum. Barbára Sól Gísladóttir skoraði það eftir frábært hlaup og laglega sendingu frá Elísu Viðarsdóttur.
Elísa lyfti boltanum inn á Barbáru sem tók hann á bringuna og setti hann í netið.
Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir hótaði á 21. mínútu með skoti rétt yfir markið en fimm mínútum síðar setti hún boltann í netið. Karítas Tómasdóttir vann boltann hátt uppi, kom honum á Hrafnhildi sem átti gott spil með Öglu Maríu Albertsdóttur áður en hún skoraði.
Blikar fóru með 2-0 forystu inn í hálfleikinn og gerði Agla María síðan þetta mikilvæga þriðja mark á 57. mínútu eftir vandræðagang í vörn FH-inga. Hrafnhildur vann boltann af Birnu, lagði hann á Öglu sem setti boltann í autt netið.
FH-ingar klóruðu í bakkann með marki Niu Raisa Christopher á 79. mínútu. Það kom langur bolti fram völlinn og misreiknaði Elín Helena Karlsdóttir boltann og kláraði Nia færið örugglega.
Fleiri urðu mörkin ekki í þessum leik og eru Blikar meistarar meistaranna. Frábært undirbúningstímabil hjá Blikum sem urðu einnig Lengjubikarsmeistarar á dögunum.




