Fotbolti.net
03.04.26 - 16:54
Snæbjört Pálsdóttir

Fyrirliðinn Eiður Aron: Við ætlum að vinna þessa deild

Auglýsing
Eiður Aron Sigurbjörnsson fyrirliði Njarðvíkur

Eiður Aron Sigurbjörnsson fyrirliði Njarðvíkur

Canon

Mynd: Stefán Marteinn

Mjólkurbikarinn

Njarðvík er komið áfram í 16. liða úrslit Mjólkubikarsins eftir -01 sigur á liði Tindastóls á Sauðárkróksvelli í dag. 

„Þetta var skrítinn leikur, þeir bara lögðu allt í leikinn Stólarnir. Þetta var svona þolinmæðisverk og bara geggjað að sjá hann inn í lokinn." Sagði Eiður Aron Sigurbjörnsson fyrirliði Njarðvíkur um fyrstu viðbrögð

Lestu um leikinn: Tindastóll 0 - 1 Njarðvík

„Við greindum þá svo sem ekkert, þetta var mest fókus á okkur. Þetta er líklega þeirra stærsti leikur á tímabilinu myndi ég segja að spila þessi úrslit og menn leggja bara allt í svona leiki og það sást bara í dag."

„Það er bara fullt, þolinmæði er mikilvæg í þessum bolta. Svo eru bara mörg atriði sem er erfitt kannski að fara akkúrat í núna svona sem við getum tekið með okkur inn í tímabilið en mikið af ágætis spilköflum og bara já það er einhver slatti."

„Við missum Tómas í krossbandsmeiðsli og svo er Ómar (Diouck) eitthvað meiddur en er byrjaður að hlaupa þannig það styttist í hann."

„Ég held að ég geti talað bara fyrir okkur alla Njarðvíkinga að við ætlum bara að vinna þessa deild."



Sjáðu viðtalið í spilaranum hér að ofan

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.