03.04.26 - 13:32
Brynjar Ingi Erluson
Guardiola: Salah er goðsögn Liverpool og ensku úrvalsdeildarinnar

Pep Guardiola og Mohamed Salah

Mynd: EPA

Pep Guardiola og Mohamed Salah

Mynd: EPA
Pep Guardiola, stjóri Manchester City á Englandi, segir Mohamed Salah verðskulda það að vera kvaddur með stæl en hann mun yfirgefa Liverpool þegar þessari leiktíð lýkur.

TENGT EFNI
Salah fer frá Liverpool eftir tímabilið (Staðfest)
Salah hefur sýnt töfra sína með Liverpool síðustu níu árin, en þetta verður hans síðasta tímabil í Liverpool-treyjunni.
Liverpool samþykkti að leyfa Salah að fara frá félaginu í sumar, aðeins ári eftir að hann framlengdi samning sinn.
Salah hefur reynst Man City óþægur ljár í þúfu síðasta áratuginn og komið að 21 marki í 25 leikjum í öllum keppnum gegn lærisveinum Guardiola sem segir hann vera bæði goðsögn hjá Liverpool og í ensku úrvalsdeildinni.
„Þvílíkur leikmaður og manneskja sem Mohamed Salah er og bara tölurnar og stöðugleikinn sem hann hefur sýnt.“
„Hann er alger goðsögn hjá Liverpool og í ensku úrvalsdeildinni fyrir allt sem hann hefur gert, með öllum þessum mörkum og stoðsendingum.“
„Á morgun er gott augnablik fyrir hann að kveðja landið. Hann verðskuldar ótrúlega viðurkenningu fyrir það sem hann hefur gefið fótboltanum og þá sérstaklega hér á Englandi,“ sagði Guardiola.