Fotbolti.net
03.04.26 - 15:48
Brynjar Ingi Erluson
Í samstarfi við styrktaraðila

Segir Bastoni að fara frá Ítalíu - „Þarf að hugsa um eigið öryggi“

Alessandro Bastoni

Alessandro Bastoni

Canon

Mynd: EPA

Giuseppe Bergomi, fyrrum landsliðsmaður Ítalíu, segir að varnarmaðurinn Alessandro Bastoni þurfi að yfirgefa landið eftir rauða spjaldið sem hann fékk í tapinu gegn Bosníu og kostaði Ítalíu sæti á HM.
Umspilið fyrir HM: Ítalía missir af þriðja mótinu í röð
TENGT EFNI

Umspilið fyrir HM: Ítalía missir af þriðja mótinu í röð

Bastoni, sem er talinn með bestu miðvörðum heims, sá rauða spjaldið undir lok fyrri hálfleiks í úrslitaleiknum gegn Bosníu í landsleikjaglugganum.

Varnarmaðurinn kastaði sér í heimskulega tæklingu á Amar Memic á 41. mínútu og uppskar réttilega rauða spjaldið. Þetta kom liðsfélögum hans í slæm mál en undir lok síðari hálfleiksins jöfnuðu Bosníumenn sem kláruðu síðan dæmið í vítakeppninni.

Bastoni hefur verið orðaður við stærri félög í Evrópu síðasta árið, en Bergomi segir brottför leikmannsins nú óumflýjanlega.

„Hann verður að gæta eigin öryggis og yfirgefa Ítalíu. Við erum að missa einstaklega hæfileikaríkan leikmann, einn af bestu varnarmönnum nútímaboltans. Mér þykir afar leitt að segja þetta, en ég held að sjálfs hans vegna verði hann að finna sér félag í öðru landi,“ sagði Bergomi um Bastoni.
Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.