Rogers opinn fyrir því að fara frá Villa - Leipzig setur verðmiða á Diomande - Grealish áfram hjá Everton?
   fös 03. apríl 2026 23:00
Kári Snorrason
Umboðsmaður Enzo ósáttur með Rosenior - „Ekki hægt að réttlæta bannið“
Mynd: EPA
Umboðsmaður Enzo Fernandez hefur gagnrýnt Liam Rosenior, knattspyrnustjóra Chelsea, harðlega fyrir að setja leikmanninn í tveggja leikja bann eftir að hafa daðrað við Real Madrid í viðtali.

Umboðsmaður Enzo er enginn annar en Javier Pastore, fyrrum leikmaður PSG, en hann sagði refsinguna ósanngjarna.

„Hann hefur sannað sig á þessu tímabili sem lykilmaður og burðarás í liði Chelsea. Mér finnst þetta allt of hörð refsing miðað við stöðu félagsins og það er í raun engin ástæða eða réttlæting fyrir því að hann hafi verið settur í bann.“

Pastore segir Fernandez aldrei hafa talað um að yfirgefa Chelsea og að ummæli hans um Madríd hafi verið misskilin. Hann hafi aðeins svarað spurningu um hvaða borg hann myndi vilja búa í.

Hann sagði jafnframt að viðræður um nýjan samning við Chelsea væru á döfinni. Ef ekki náist samkomulag fyrir HM í sumar gæti leikmaðurinn farið að skoða önnur lið.
Slapp
banner
banner