Fotbolti.net
03.05.18 - 07:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Japanskur sóknarleikmaður í Leikni R. (Staðfest)

Ryota í leik með Leikni gegn Breiðablik á dögunum.

Ryota í leik með Leikni gegn Breiðablik á dögunum.

Canon

Mynd: Raggi Óla

Leiknir Reykjavík hefur samið við japanska sóknarleikmanninn Ryota Nakamura fyrir átökin í Inkasso-deildinni í sumar.

Royta var til skoðunar hjá Leikni í vetur og nú hefur verið tekin ákvörðun um að semja við hann. Hann spilaði með liðinu gegn Breiðablik í 3-1 tapi í Mjólkurbikarnum á þriðjudag.

Ryota á að koma með mörk inn í þetta lið en miklar vonir eru bundnar við hann í Breiðholtinu.

Fyrsti leikur Leiknis í Inkasso-deildinni er við ÍA upp á Akranesi á laugardaginn.

Í vetur þurfti Leiknir að greiða sekt upp á 60 þúsund krónur eftir að hafa notað Ryota í leik gegn Fjölni í Lengjubikarnum.

Sjá einnig:
Leiknir R. prófaði Japana í Lengjubikarnum - Fær sekt frá KSÍ
Leiknismönnum er spáð 8. sæti í spá Fótbolta.net fyrir Inkasso-deildina í sumar.

Komnir:
Ágúst Freyr Hallsson frá HK
Ernir Bjarnason frá Breiðabliki
Óttar Húni Magnússon frá Ranheim
Ryota Nakamura frá Japan
Sólon Breki Leifsson frá Breiðabliki

Farnir:
Anton Freyr Ársælsson í Fjölni (Var á láni)
Brynjar Hlöðversson í HB
Halldór Kristinn Halldórsson hættur
Kolbeinn Kárason í KH
Ragnar Leósson í ÍA
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.