Fotbolti.net
03.05.18 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Sverri Bartolozzi í Þrótt Vogum (Staðfest)

Sverri Bartolozzi í Þrótt Vogum (Staðfest)
Canon

Mynd: Þróttur V.

Þróttur Vogum hefur fengið varnarmanninn Sverri Bartolozzi í sínar raðir frá Haukum úr Hafnarfirði.

Sverrir stoppaði ekki lengi í Haukum en hann gekk í raðir Hafnarfjarðarfélagsins í febrúar.

Hann hefur nú ákveðið að söðla aðeins út fyrir Hafnarfjörð, í Voganna og semja við Þrótt.
Á síðasta tímabili lék Sverrir stórt hlutverk með Völsungi í 2. deild karla. Hann spilaði 21 leik í 2. deildinni, auk þess sem hann lék tvo leiki í Borgunarbikar karla með Húsvíkingum.

Sverrir er tvítugur að aldri og hefur spilað landsleik með U-17.

Þrótturum er spáð 7. sæti í 2. deild karla í sumar í spá sem Fótbolti.net stóð fyrir.

Smelltu hér ef þú vilt lesa nánar um spánna.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.