03.05.18 - 18:35
Ívan Guðjón Baldursson
Teitur Magnússon búinn að semja við FH (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Hinn bráðefnilegi Teitur Magnússon er búinn að skrifa undir samning við meistaraflokks FH.
Teitur er fæddur 2001 og er fastamaður í U17 ára liði Íslands. Félög á borð við Stuttgart og Parma hafa verið að skoða hann að undanförnu.

Teitur spilaði sinn fyrsta leik fyrir meistaraflokk FH gegn KR í Kaplakrika síðasta sumar.
„Við FH-ingar bindum miklar vonir við Teit í framtíðinni og óskum honum til hamingju með sinn fyrsta samning við FH,\" stendur á síðu FHinger.net á Facebook.