Fotbolti.net
03.05.19 - 13:33
Arnar Daði Arnarsson

Bjarni Aðalsteins aftur lánaður í Magna (Staðfest)

Bjarni eftir leik með Magna síðasta sumar.

Bjarni eftir leik með Magna síðasta sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Miðjumaðurinn, Bjarni Aðalsteinsson hefur verið lánaður í Magna frá KA og er kominn með leikheimild með liðinu.

Bjarni gæti þá spilað sinn fyrsta leik á morgun með Magna þegar liðið heimsækir Leikni R. í opnunarleik Inkasso-deildarinnar klukkan 16:00.
Bjarni lék á láni með Magna í Inkasso-deildinni í fyrra og vakti mikla athygli fyrir sína frammistöðu. Hann var til að mynda þrívegis í liði umferðarinnar hér á Fótbolta.net síðasta sumar.

Hann var einnig bæði valinn bestur og efnilegastur á lokahófi Magna eftir tímabilið í fyrra.

Bjarni kom inná í 5-0 sigri KA á Sindra í Mjólkurbikarnum á dögunum en hann var ekki í leikmannahópi KA í 1. umferðinni í Pepsi Max-deildinni.

Hann skoraði tvö mörk í 22 leikjum með Magna í Inkasso-deildinni í fyrra.

Komnir:
Angantýr Máni Gautason frá KA
Frosti Brynjólfsson frá KA (Á láni)
Gauti Gautason frá Þór
Ingólfur Birnir Þórarinsson frá KA
Patrekur Hafliði Búason frá KA
Tómas Veigar Eiríksson frá KA (Á láni)
Viktor Már Heiðarsson frá KA
Þorsteinn Ágúst Jónsson frá KA
Aron Elí Gíslason frá KA (á láni)
Hjörvar Sigurgeirsson frá KA (á láni)
Bjarni Aðalsteinsson frá KA (á láni)

Farnir:
Brynjar Ingi Bjarnason í KA (var á láni)
Ívar Örn Árnason í KA (var á láni)
Jón Alfreð Sigurðsson í Stjörnuna (var á láni)
Ólafur Aron Pétursson í KA (var á láni)
Sigurður Marinó Kristjánsson í Þór
Þorgeir Ingvarsson í Fjölni (var á láni)
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.