Fotbolti.net
03.05.19 - 10:45
Arnar Daði Arnarsson

Fjölnir fær Einar Örn - Lánar Viktor Andra í Vestra (Staðfest)

Einar Örn Harðarson.

Einar Örn Harðarson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Einar Örn Harðarson leikmaður FH hefur verið lánaður í Fjölni. Einar Örn sem er miðvörður er kominn með leikheimild með Fjölni og er því löglegur með liðinu í fyrsta leik í Inkasso-deildinni á sunnudaginn þegar Fjölnir tekur á móti Haukum.
Einar Örn lék einn leik með FH í Mjólkurbikarnum á síðasta tímabili þegar hann lék allan leikinn í 6-1 sigri á Sindra.

Þá lék hann einn leik með FH í Lengjubikarnum í vetur. Einar Örn er enn gjaldgengur í 2. flokk en hann er fæddur árið 2001. Þá á hann þrjá leiki með U17 ára landsliði Íslands.

Fjölnismenn hafa verið að bæta við sig leikmönnum rétt fyrir mót en á dögunum fengu Fjölnir varnarmanninn, Rasmus Christiansen á láni frá Val.

Á sama tíma lánuðu Fjölnismenn Viktor Andra Hafþórsson í Vestra en Viktor lék fjóra leiki með Fjölni í Pepsi-deildinni í fyrra og einn í bikarnum. Vestra er spáð 1. sætinu í 2. deildinni í spá þjálfara fyrir deildina.

Komnir:
Albert Brynjar Ingason frá Fylki
Atli Gunnar Guðmundsson frá Fram
Jón Gísli Ström frá ÍR
Steinar Örn Gunnarsson frá ÍR
Rasmus Christiansen frá Val (á láni)
Einar Örn Harðarson frá FH (á láni)

Farnir:
Almarr Ormarsson í KA
Birnir Snær Ingason í Val
Igor Jugovic
Mario Tadjevic til Króatíu
Valmir Berisha í Álasund (var á láni)
Torfi Tímoteus Gunnarsson í KA (Á láni)
Þórður Ingason í Víking R.
Þórir Guðjónsson í Breiðablik
Ægir Jarl Jónasson í KR
Viktor Andri Hafþórsson í Vestra (á láni)
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.