Fotbolti.net
03.06.17 - 11:45
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ítalska deildin

AC Milan landar Kessie (Staðfest)

Farinn til Mílanó.

Farinn til Mílanó.

Canon

Mynd: Getty Images

AC Milan hefur samið við miðjumanninn Franck Kessie. Kessie var eftirsóttur, en Mílanó-liðið hafði betur gegn liðum eins og Manchester City, Liverpool og Arsenal í baráttunni um hann.

Þessi tvítugi leikmaður kemur til Milan frá Atalanta. Hann átti gott tímabil og hjálpaði Atalanta að lenda í fjórða sæti Seríu A.
Hann kemur til AC Milan á tveggja ára lánssamningi, en á vefsíðu liðsins kemur fram að Milan þarf að kaupa hann eftir að lánssamningum lýkur, þeim ber skylda til að gera það.

Kessie er annar leikmaðurinn sem Milan fær til sín í sumar. Áður hafði argentíski varnarmaðurinn Mateo Musacchio verið keyptur.

Milan ætlar sér stærri hluti á næstu leiktíð eftir að hafa lent í sjötta sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar á tímabilinu sem var að líða.

Liðið sögufræga hefur ekki fagnað Ítalímeistaratitlinum síðan 2011.

#welcomeKessie! Benvenuto @kessiefranck! #weareacmilan 🔴⚫

A post shared by AC Milan (@acmilan) on

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.