Fotbolti.net
03.06.18 - 17:00
Ívan Guðjón Baldursson

Umtiti framlengir við Barcelona (Staðfest)

Umtiti framlengir við Barcelona (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Franski varnarmaðurinn Samuel Umtiti er búinn að framlengja samning sinn við Barcelona.

Manchester United sýndi Umtiti mikinn áhuga og var sterklega orðað við hann en miðvörðurinn ákvað að vera áfram á Spáni.

Í gamla samningnum var 53 milljón punda söluákvæði sem fréttamenn töldu að Rauðu djöflarnir myndu nýta sér.
Samningurinn gildir í fimm ár, en Umtiti er 24 ára og á 83 leiki að baki fyrir Barcelona.

Umtiti fer með franska landsliðinu á HM og er líklegur til að vera í byrjunarliðinu. Hann á 18 A-landsleiki að baki.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.