Fótbolta.net hefur borist úrslit úr tveimur æfingaleikjum sem fram fóru í kvöld. Ef þú veist af æfingaleik á næstunni eða úrslit úr leik sem fram fór í kvöld endilega sendu línu á [email protected].
Fyrri leikur kvöldsins hófst klukkan 18:00 þegar Pepsi Max-deildar lið Stjörnunnar mætti Lengjudeildarliði Hauka.
Stjarnan sigraði leikinn 3-1 og voru það Jana Sól Vadimarsdóttir, Jasmín Erla Ingadóttir og Aníta Ýr Þorvaldsdóttir sem skoruðu mörk Stjörnunnar. Mark Jönu kom í fyrri hálfleik og leiddi Stjarnan 1-0 í hléi. Það var Elín Klara Þorkelsdóttir sem skoraði mark Hauka í leiknum.
Stjarnan 3-1 Haukar
Mörk Stjörnunnar: Jana Sól, Aníta Ýr og Jasmín Erla.
Mark Hauka: Elín Klara Þorkelsdóttir.
Suður með sjó, á Þorlákshafnarvelli, tók 3. deildarlið Ægis á móti 4. deildarliði Árborgar.
Heimamenn í Ægi sigruðu leikinn 2-0 og komu bæði mörk leiksins í fyrri hálfleik.
Ægir 2-0 Árborg
1-0 Viktor Marel Kjærnested ('2)
2-0 Pálmar Þór Ásbergsson ('35)
Veistu úrslit úr æfingaleikjum?
Ef þú hefur upplýsingar um úrslit æfingaleikja og markaskorara endilega sendu okkur þá tölvupóst á [email protected] eða settu úrslitin á Twitter og merktu #fotboltinet
Athugasemdir