Argentínska goðsögnin Lionel Messi er eini leikmaður argentínska landsliðsins sem verður í einkaherbergi á HM 2026 í Norður-Ameríku.
Áður fyrr deildi Messi alltaf herbergi með góðvini sínum Sergio Agüero sem þurfti að leggja fótboltaskóna á hilluna árið 2021 vegna hjartagalla.
Það var því ákveðið að Messi yrði einn í herbergi á HM í Katar 2022 og endaði hann á að leiða þjóð sína til langþráðs heimsmeistaratitils.
Lionel Scaloni landsliðsþjálfari ákvað að halda sama fyrirkomulagi og í Katar. Aðrir leikmenn liðsins eru tveir og tveir saman í herbergi til að auka liðsheild en Messi fær að vera einn.
Messi, sem mun eiga 39 ára afmæli síðar í júní, er í herbergi 202 á hóteli liðsins í Kansas City, beint við hliðina á góðvinum sínum Rodrigo De Paul og Nicolás Otamendi.
Argentína er með Alsír, Austurríki og Jórdaníu í riðli á HM.
28.05.2026 23:00
HM hópur Argentínu - Messi fer á sitt sjötta mót
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!


